Karen Hulda Hrafnsdóttir skoraði sitt fyrsta mark í meistaraflokksleik með Þór/KA og þar með sitt fyrsta mark í Bestu deildinni. Mynd: Ármann Hinrik.
- - -
Karen Hulda Hrafnsdóttir og Erin Flurey sáu um að koma boltanum í net gestanna í 2-0 sigri á Fram í 15. umferð Bestu deildarinnar í gærkvöld. Þór/KA færði sig upp um eitt sæti í deildinni með sigrinum.
Markalaust var eftir fyrri hálfleikinn, nokkur færi, en markverðir og varnarmenn liðanna sáu um að halda mörkunum hreinum. Það voru þó ekki liðnar nema átta mínútur af seinni hálfleiknum þegar fyrra markið kom. Hildur Anna Birgisdóttir tók þá aukaspyrnu frá vinstri kanti, sendi háan bolta inn í teig þar sem Arna Sif Ásgrímsdóttir og Ashley Brown Orkus, markvörður Fram, börðust um boltann í loftinu. Eftir þau viðskipti féll boltinn loks fyrir fætur Karenar Huldu Hrafnsdóttur sem náði að koma honum yfir línuna. Fyrsta mark Karenar Huldu fyrir Þór/KA og þar með einnig í Bestu deildinni.
Þegar seinni hálfleikurinn var um það bil hálfnaður skoraði María Dögg Jóhannsdóttir eftir sendingu frá Hildi Önnu í framhaldi af hornspyrnu. Markið var laglegt en aðstoðardómarinn flaggaði rangstöðu á Maríu Dögg.
Seinni hálfleikurinn var líflegur og ágætis færi og fyrirgjafir, en markverðir beggja liða stóðu fyrir sínu. Þegar um sex mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma fengu gestirnir horn, tóku stutt horn, en áætlunin misheppnaðist og Erin Flurey fékk boltann rétt utan vítateigs. Hún var fljót að hugsa, sendi á Hildi Önnu sem var á sprettinum á vinstri kantinum. Hildur Anna sendi síðan á Margréti Árnadóttur og hún kom boltanum áfram, á Erin Flurey sem var skyndilega orðin fremst ásamt Birgittu Rún Finnbogadóttur. Erin hótaði skoti og lék þannig á varnarmenn Fram, komst ein á móti markverðinum og skoraði um það bil frá vítapunktinum.
Þegar upp var staðið má segja að sigurinn hafi verið nokkuð öruggur þó svo gestirnir hafi á köflum gert sig líklega til að jafna leikinn áður en annað markið kom. Eftir annað markið var hins vegar aldrei spurning um úrslitin, tíminn rann frá gestunum og knattspyrnukonur, þjálfarar og stuðningsfólk fagnaði fjórða heimasigrinum í röð. Sanngjarn sigur þegar upp er staðið þrátt fyrir eitt og eitt vafaatriði sem deila má um.
Þór/KA - Fram 2-0 (0-0)
- 1-0 - Karen Hulda Hrafnsdóttir (53'). Stoðsending: Arna Sif Ásgrímsdóttir.
- 2-0 - Erin Flurey (84'). Stoðsending: Margrét Árnadóttir.
- Leikskýrslan á vef KSÍ
- Besta deildin
- Myndasöfn (koma síðar)
Tölur og fróðleikur
- 1 - Karen Hulda Hrafnsdóttir skoraði sitt fyrsta mark í meistaraflokki fyrir Þór/KA og þar með einnig sitt fyrsta mark í Bestu deildinni. Áður hafði hún skorað tvö mörk í meistaraflokki, en það var með Dalvík/Reyni í 2. deildinni í fyrra. Karen Hulda var jafnframt að spila sinn 30. meistaraflokksleik, samanlagt í deildakeppnum, bikarkeppni og deildabikarkeppni. Af þessum 30 leikjum eru 17 fyrir Þór/KA og 13 fyrir Dalvík/Reyni í 2. deild og bikar.
- 1 - Í viðtali sem útsendari Sýnar/Vísis átti við Aðalsteinn Jóhann Friðriksson þjálfara eftir leik kom meðal annars til umræðu að frá 4-6 tapinu fyrir Víkingi 30. maí hafi liðið náð að þétta raðirnar og ekki fengið mörg mörk á sig á heimavelli. „Ég veit ekki hvað við erum búin að fá mörg mörk á okkur á heimavelli síðan, þau eru ekki mörg,“ sagði hann. Hér skal það bara upplýst fyrir Alla og alla: Þór/KA hefur unnið fjóra heimaleiki í röð og aðeins fengið á sig eitt mark í þessum fjórum leikjum, það var í 2-1 sigrinum á ÍBV. Hinir þrír heimasigrarnir eru 2-0 gegn Þrótti, 1-0 gegn Grindavík/Njarðvík og núna 2-0 gegn Fram.
- 4 - Þór/KA hefur haldið markinu hreinu í fjórum leikjum af þeim 14 sem liðið hefur spilað deildinni í sumar. Fyrst voru það þrír í röð gegn Val, Þrótti og Grindavík/Njarðvík og svo núna gegn Fram.
- 12 - Af 27 leikmönnum sem hafa verið á leikskýrslu hjá Þór/KA í Bestu deildinni í sumar hafa 11 skorað mark eða mörk, auk þess sem ein skoraði í Mjólkurbikarnum. Fimmtán leikir í deild og bikar, 27 leikmenn á skýrslu, 24 sem hafa spilað, 12 sem hafa skorað fyrir liðið. Erin Flurey hefur skorað fimm mörk og Margrét Árnadóttir fjögur. Aðrar sem hafa skorað í deild eða bikar: Amalía Árnadóttir (2), Bríet Jóhannsdóttir (2), Arma Sif Ásgrímsdóttir, Aníta Ingvarsdóttir, Birgitta Rún Finnbogadottir (í bikar), Emelía Ósk Krüger, Hulda Ósk Jónsdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir og María Dögg Jóhannesdóttir eitt hver.
- 20 - María Dögg Jóhannesdóttir spilaði sinn 20. leik fyrir Þór/KA, en hún spilað alla leiki liðsins í Lengjubikarnum, Mjólkurbikarnum og Bestu deildinni frá því hún gekk til liðs við Þór/KA í janúar.
- 20 - Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir spilaði sinn 20. meistaraflokksleik fyrir Þór/KA, en hún á samtals að baki 28 leiki, þar af átta með Völsungi á lánssamningi í fyrrasumar.
- 60 - Hildur Anna Birgisdóttir spilaði sinn 60. meistaraflokksleik, samanlagt í öllum keppnum. Þar af eru 52 fyrir Þór/KA og átta fyrir Völsung í 2. deild á lánssamningi frá Þór/KA í fyrrasumar. Hildur endurnýjaði samning sinn við félagið fyrr í vikunni og er nú samningsbundin Þór/KA út tímabilið 2028.
- 120 - Amalía Árnadóttir spilaði sinn 120. leik í meistaraflokki, samanlagt í öllum keppnum. Þar af eru tíu fyrir Völsung á lánssamningi sumarið 2022 og 11 með Hömrunum 2021.
- 440 - Arna Sif Ásgrímsdóttir spilaði sinn 440. meistaraflokksleik, samanlagt í öllum keppnum. Þar af eru 305 fyrir Þór/KA, 111 fyrir Val, fimm fyrir Verona á Ítalíu og 19 fyrir Goteborg/Kopparbergs í Svíþjóð. Þetta var jafnframt hennar 310. leikur í efstu deild, samanlagt á Íslandi, Ítalíu og í Svíþjóð. Fyrir leik fékk hún afhenta treyju með 300 á bakinu því fyrir nokkrum vikum spilaði hún sinn 300. meistaraflokksleik fyrir Þór/KA, samanlagt í öllum keppnum, þ.e. Íslandsmóti, bikarkeppni, deildabikarkeppni, meistarakeppni og í Evrópukeppnum, eins og fjallað var um hér á vefnum 23. júní, daginn eftir sigurleik gegn Þrótti.
Hópurinn
- Byrjunarlið: Allie Augur (m), Angela Mary Helgadóttir, Libby Moore, María Dögg Jóhannesdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir, Amalía Árnadóttir (Agnes Birta, 78'), Arna Sif Ásgrímsdóttir (f), Margrét Árnadóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir (Birgitta Rún, 72'), Erin Flurey (Emelía Blöndal, 90+2').
- Varamenn: Harpa Jóhannsdóttir (m), Birgitta Rún Finnbogadóttir (72'), Karen María Sigurgeirsdóttir, Eva Dolina-Sokolowska, Agnes Birta Stefánsdóttir (78'), Halla Bríet Kristjánsdóttir, Kolfinna Eik Elínardóttir, Emma Júlía Cariglia, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir (90+2').

Byrjunarliðið gegn Fram. Aftari röð frá vinstri: Karen Hulda Hrafnsdóttir, María Dögg Jóhannesdóttir, Amalía Árnadóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir, Angela Mary Helgadóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir fyrirliði. Fremri röð frá vinstri: Hildur Anna Birgisdóttir, Allie Augur, Margrét Árnadóttir, Erin Flurey og Libby Moore.
Úrslit 15. umferðar
- Stjarnan - Þróttur 1-1
- Þór/KA - Fram 2-0
- Grindavík/Njarðvík - ÍBV 4-2
- Valur - Víkingur 1-0
- FH - Breiðablik (15. ágúst)
Leikir 16. umferðar
- 12.08.: Þróttur - Valur
- 12.08.: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík
- 12.08.: Fram - FH
- 13.08.: ÍBV - Stjarnan
- 14.08.: Víkingur - Þór/KA
Næstu fjórir
Hér eru aðeins næstu fjórir leikir því nú eru aðeins fjórar umferðir eftir af deildarkeppninni fyrir tvískiptingu í efri sex og neðri fjögur lið. Leikjadagskráin eftir 6. september ræðst því ekki fyrr en staðan að loknum 18 umferðum er ljós.
- 14. ágúst kl. 18
Víkingur - Þór/KA
- 21. ágúst kl. 18
Þór/KA - Valur
- 29. ágúst kl. 14
Þróttur - Þór/KA
- 6. september kl. 14
FH - Þór/KA
Leikur í 10. umferð mótsins
-