Besta deildin: Markalaust jafntefli og baráttan harðnar

Mættar í alls konar fótboltatreyjum, til stuðnings við styrktarfélagið Börn með krabbamein.
Mættar í alls konar fótboltatreyjum, til stuðnings við styrktarfélagið Börn með krabbamein.

Markalaust jafntefli varð niðurstaðan í heimsókn okkar í Laugardalinn í gær, leik gegn Þrótti í 18. umferð Bestu deildarinnar.

Þrátt fyrir að boltinn hafi verið meira í umsjá heimaliðsins lengst af í leiknum voru það okkar leikmenn sem fengu hættulegustu færin. Því miður nýttust þau færi ekki, en liðið varðist frábærlega með fyrirliðann Örnu Sif í broddi fylkingar og þrátt fyrir ásókn Þróttara urðu færin þeirra varla hættuleg. Þegar boltinn komst framhjá varnarmönnum var það Allie Augur í markinu sem sá um að grípa inn í. Það segir kannski allt um gang leiksins að Þróttur fékk 14 hornspyrnur í leiknum, en Þór/KA tvær. Hornspyrnur og fyrirgjafir lentu hins vegar nánast allar á kolli Örnu Sifjar eða í höndum Allie Augur í markinu. 

Úrslit annarra leikja hleyptu hins vegar enn meiri spennu í deildina fyrir lokaumferðina. Víkingur var í botnsætinu, en vann Grindavík/Njarðvík. Fram var í næstneðsta sæti fyrir umferðina, en vann Stjörnuna. Að loknum fjórum leikjum 18. umferðarinnar var Valur því kominn í botnsætið, en Valur og FH mættust í morgun í lokaleik umferðarinnar og fór sá leikur 2-2. Það dugði þeim ekki til að koma sér aftur úr neðsta sætinu, en Víkingur og Valur eru jöfn að stigum, bæði með 17 stig og -12 í markamun. Þar fyrir ofan er Fram í 8. sætinu og Þór/KA í 7. sætinu, bæði með 19 stig, en Þór/KA með betri markamun. Þar fyrir ofan eru svo þrjú stig í Þrótt og Grindavík/Njarðvík sem bæði eru með 22 stig.

Nú þegar er ljóst að Breiðablik, FH, ÍBV og Stjarnan verða í efri hlutanum á lokakafla Íslandsmótsins, en spurning hvaða tvö lið enda með þeim fyrir ofan strik. Þróttur og Grindavík/Njarðvík eru í bestu stöðunni þar, en Þór/KA á möguleika á að færa sig upp töfluna með sigri, og að annað eða bæði hinna tapi sínum leik. Fram á tölfræðilega möguleika, en vegna markamunar eru þeir möguleikar mjög litlir.

Þróttur - Þór/KA 0-0

Tölur og fróðleikur

  • - Leikurinn var sá sjötti af 17 leikjum sem liðið heldur markinu hreinu í deildinni í sumar.
  • 20 - Karen Hulda Hrafnsdóttir spilaði sinn 20. leik með Þór/KA. Þar af eru 15 í Bestu deildinni, einn í Mjólkurbikar og fjórir í Lengjubikar.
  • 20 - Birgitta Rún Finnbogadóttir spilaði sinn 20. leik með Þór/KA. Þar af eru 16 í Bestu deildinni, einn í Mjólkurbikar og þrír í Lengjubikar. 
  • 40 - Hildur Anna Birgisdóttir spilaði sinn 40. leik í Bestu deildinni. Samanlagt á hún að baki 63 leiki í meistaraflokki, þar af 55 fyrir Þór/KA og átta fyrir Völsung.
  • 130 - Agnes Birta Stefánsdóttir spilaði sinn 130. leik fyrir Þór/KA.
  • 160 - Margrét Árnadóttir spilaði sinn 160. leik í efstu deild, þegar taldir eru saman leikir á Íslandi og Ítalíu. Leikirnir í efstu deild hér á landi eru 155, allir fyrir Þór/KA.

Hópurinn

  • Byrjunarlið: Allie Augur (m), Angela Mary Helgadóttir, Libby Moore, María Dögg Jóhannesdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir (Halla Bríet 90+2'), Karen María Sigurgeirsdóttir (Amalía 60'), Arna Sif Ásgrímsdóttir (f), Margrét Árnadóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir (Lauren 60'), Erin Flurey (Birgitta Rún 90+2').
  • Varamenn: Harpa Jóhannsdóttir (m), Amalía Árnadóttir (60'), Birgitta Rún Finnbogadóttir (90+2'), Eva Dolina-Sokolowska, Agnes Birta Stefánsdóttir, Halla Bríet Kristjánsdóttir (90+2'), Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Lauren Lapomarda (60').

Eins og fram kom í frétt hér á vef félagsins á föstudag tóku leikmenn og starfsfólk þátt í Treyjudeginum. Okkar fólk mætti til leiks í alls konar fótboltatreyjum, innlendum og erlendum, eins og öll liðin í leikjum þessarar umferðar. Byrjunarliðin og dómarar leiksins gengu inn á völlinn við upphaf leiks í sínum uppáhaldstreyjum. Markmiðið er að vekja athygli á styrktarfélaginu Börn með krabbamein og starfi þess í þágu barna og fjölskyldna þeirra. Nánar er fjallað um verkefnið í frétt okkar á föstudag - sjá hér.

Mættar til leiks í alls konar uppáhaldstreyjum til stuðnings styrktarfélaginu Börn með krabbamein. Aftari röð frá vinstri: Lauren Lapomarda, Allie Augur, Halla Bríet Kristjánsdóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir, Margrét Árnadóttir, Erin Flurey, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir og Agnes Birta Stefánsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Amalía Árnadóttir, Libby Moore, Birgitta Rún Finnbogadóttir, Angela Mary Helgadóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir, María Dögg Jóhannesdóttir, Eva Dolina-Sokolowska, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir og Harpa Jóhannsdóttir.

Úrslit 18. umferðar

  • Þróttur - Þór/KA 0-0
  • Fram - Stjarnan 3-2
  • Víkingur - Grindavík/Njarðvík 3-0
  • Breiðablik - ÍBV 1-2
  • Valur - FH 2-2

Leikir 10. umferðar

Lokaumferð deildarinnar fyrir tvískiptingu fer fram 5.-7. september, en í raun er þetta 10. umferð mótsins sem var færð aftur fyrir 18. umferðina. Athygli vekur að í þessari lokaumferð eru ekki öll liðin að spila á sama tíma, lið sem berjast um sæti í efri hlutanum eru með mismunandi leikdaga í þessari umferð. 

  • 05.09.: ÍBV - Fram
  • 06.09.: FH - Þór/KA
  • 06.09.: Grindavík/Njarðvík - Valur
  • 07.09.: Stjarnan - Víkingur
  • 07.09.: Þróttur - Breiðablik