Besta deildin: Stigi bjargað á síðustu stundu

Jafntefli varð niðurstaðan í fyrsta leik okkar í Bestu deildinni þetta árið og um leið fyrsta leik okkar á nýja gervigrasvellinum. Erin Flurey skoraði 800. mark Þórs/KA í efstu deild þegar hún jafnaði leikinn í 1-1 á 90. mínútu leiksins.

Það voru Hafnfirðingarnir í FH sem voru gestir okkar í fyrsta leiknum í gær og þær voru á undan að skora. Thelma Lóa Hermannsdóttir náði forystunni fyrir FH eftir aðeins átta mínútna leik. Gestirnir höfðu yfirhöndina mestallan fyrri hálfleikinn og gengu til búningsklefa með eins marks forystu. Leikurinn var mun jafnari í seinni hálfleiknum. Þrátt fyrir ágætis kafla hjá báðum liðum úti á vellinum voru dauðafærin ekki mörg. Bæði lið komu sér í ágætar stöður og mesta hættan oftast í hornum og aukaspyrnum, en þar gripu markverðir og varnarmenn liðanna ávallt vel inn í og bægðu hættunni frá. Bæði lið áttu ágætis sóknir sem enduðu með skotum utan teigs eða utarlega úr teignum, án þess að boltinn rataði í netið.

Amalía Árnadóttir komst í gott færi þegar hún fékk boltann inni á vítateig eftir sókn Þórs/KA á 77. mínútu, náði skoti að marki, en varnarmenn FH komust fyrir. Sex mínútum síðar komst Thelma Lóa í gott færi við mark Þórs/KA, en skaut yfir. 

Það var svo á 90. mínútu leiksins sem Erin Flurey jafnaði leikinn með hnitmiðuðu skoti í stöngina og inn eftir að hún hafði fengið boltann óvænt frá varnarmanni FH. Eins og fram kom í frétt okkar í gær var þetta 800. mark Þórs/KA í efstu deild Íslandsmótsins.

Þór/KA - FH 1-1 (0-1)

Fyrsta byrjunarliðið okkar á nýja vellinum

Eins og áður hefur komið fram var leikurinn gegn FH í gær fyrsti keppnisleikur okkar á nýjum gervigrasvelli og því tilvalið að fanga þá sögulegu stund með mynd af byrjunarliðinu rétt fyrir leik. Ármann Hinrik hafði vökul augu (og linsu) með liðinu okkar og smellti af þessari mynd.

Nýtt gervigras, nýr völlur, nýtt ár. Fyrsta byrjunarliðið okkar á þessu grasi. Aftari röð frá vinstri: Hulda Ósk Jónsdóttir, Margrét Árnadóttir, Amalía Árnadóttir, María Dögg Jóhannesdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir og Allie Augur. Fremri röð frá vinstri: Hulda Björg Hannesdóttir, Elísa Bríet Björnsdóttir, Bríet Jóhannsdóttir, Bríet Fjóla Bjarnadóttir og Karen María Sigurgeirsdóttir. Mynd: Ármann Hinrik.

Tölur og fróðleikur

  • 1 - Aníta Ingvarsdóttir (2009) kom inn af varamannabekknum í viðbótartíma leiksins fyrir Elísu Bríeti Björnsdóttur. Aníta var þarna að stíga sín fyrstu skref í Bestu deildinni. Aníta spilaði fimm leiki fyrir Þór/KA í Lengjubikarnum í vetur og skoraði eitt mark. Hún spilaði 15 leiki og skoraði níu mörk með Dalvík í 2. deildinni í fyrrasumar ásamt leikjum i bikar og deildabikar. Samanlagt á hún að baki 23 leiki að mínútunum í leiknum gegn FH í gær meðtöldum. 
  • 1 - Allie Augur og Erin Flurey spiluðu báðar í fyrsta skipti í Bestu deildinni í gær. Báðar höfðu áður spilað einn leik með liðinu í Lengjubikarnum.
  • 1 - Birgitta Rún Finnbogadottir, Elísa Bríet Björnsdóttir og María Dögg Jóhannesdóttir spiluðu allar sinn fyrsta leik í Bestu deildinni fyrir Þór/KA, en allar eiga þær marga leiki að baki með Tindastóli í Bestu deildinni og öðrum mótum.
  • 27 - Margrét Árnadóttir fagnaði 27 ára afmæli sínu í gær. Margrét er vinsæll þjálfari og leikmaður og höfðu nokkrar af þeim sem hún þjálfar tekið sig saman og teiknað og skrifað hamingjuóskir til þjálfarasíns á pappír og héldu uppi í leiknum. Þær fengu að sjálfsögðu heimsókn frá Margréti eftir leik.
  • 40 - Hildur Anna Birgisdóttir spilaði sinn 40. meistaraflokksleik fyrir Þór/KA. Þar af eru 26 í Bestu deildinni, tveir í Mjólkurbikarkeppninni og 12 í Lengjubikar.
  • 60 - Amalía Árnadóttir spilaði sinn 60. leik í efstu deild. 
  • 80 - Agnes Birta Stefánsdóttir spilaði sinn 80. leik í efstu deild.
  • 80 - Bríet Jóhannsdóttir spilaði sinn 80. leik fyrir Þór/KA. Þar af eru 53 í Bestu deildinni, fjórir í Mjólkurbikarkeppninni og 23 í Lengjubikarnum. 
  • 170 - Hulda Björg Hannesdóttir spilaði sinn 170. leik í efstu deild.  
  • 177 - Gæslufólki okkar taldist svo til að 177 manns hafi fylgst með leiknum úr áhorfendastúkunni.
  • 800 - Erin Flurey skoraði 800. mark Þórs/KA í efstu deild Íslandsmótsins þegar hún jafnaði í 1-1 á 90. mínútu leiksins. Nánar um tímamótamörk í annarri frétt.

Myndir: Linda Guðmundsdóttir.