Karfan er tóm.
Þrátt fyrir talsverða yfirburði í fyrri hálfleik og fjölda hættulegra færa í báðum hálfleikjum tókst Þór/KA ekki að skora þegar liðið tók á móti Val í 17. umferð Bestu deildarinnar í gærkvöld. Gestunum tókst hins vegar að koma boltanum einu sinni í netið eftir nokkuð skondið atvik og fóru því með öll stigin suður.
Þór/KA var talsvert meira með boltann og skapaði sér góð færi í fyrri hálfleiknum, en vantaði þó upp á að koma boltanum alla leið. Minnstu munaði þegar Erin átti stangarskot í fyrri hálfleiknum. Færin verða þó ekki talin upp hér enda urðu þau ekki að mörkum.
Seinni hálfleikurinn var jafnari, en áfram skapaði liðið sér nokkuð af færum án þess að koma boltanum alla leið í markið. Á lokamínútunni kom svo áfallið. Valur átti hornspyrnu og spyrnan sjálf misheppnaðist þegar sú sem tók hana datt um leið og hún spyrnti. Upp úr því barst boltinn inn á teig þar sem Lillý Rut Hlynsdóttir skallaði hann í boga yfir Allie í markinu. Hornspyrnan sjálf er hins vegar umhugsunarefni. Í uppgjöri leiksins á Vísi skrifar Árni Gísli Magnússon meðal annars: „Það er spurning með markið hjá Val þar sem Ísabella Sara rennur þegar hún spyrnir boltanum með hægri fæti og fer mögulega beint í vinstri fótinn á henni og þaðan á samherja. Ef það er raunin er það svokallað tvíspark og óbein aukaspyrna dæmd fyrir Þór/KA ef mér skjátlast ekki.“
Þrátt fyrir ákafar tilraunir í viðbótartíma og langar mínútur sem fóru í skiptingar tókst liðinu ekki að jafna leikinn og gestirnir fóru því heim með þrjú stig og færðu sig þar með úr fallsæti, upp í 8. sætið. Þór/KA færðist aftur niður í 7. sætið eftir tapið í gærkvöld því fyrr um daginn vann Þróttur sigur á ÍBV í Eyjum.
Eins og fólk veit er aðalbúningur Þórs/KA alsvartur, treyjur, stuttbuxur og sokkar. Um liti á búningum gilda ákveðnar reglur og til dæmis mega bæði lið ekki vera í eins litum eða áþekkum treyjum og ekki í eins litum sokkum. Það auðveldar dómurum að taka ákvarðanir, sérstaklega þegar þröng er á þingi inni í vítateig eða annars staðar. Að sama skapi eiga aðgreindar treyjur liða auðvitað að auðvelda leikmönnum sjálfum að finna samherja. Markverðir mega heldur ekki vera í sama eða svipuðum lit því stundum kemur fyrir að markverðir skunda fram í hornspyrnum eða aukaspyrnum á lokaandartökum leiks og mega því ekki líkjast markverði varnarliðsins um of.
Það skýtur því skökku við í þessum litareglum að dómarar geti mætt í leiki í sokkum sem eru í sama lit og annað liðið klæðist. Í leik gærdagsins voru dómarar í ljósgrænum treyjum, en svörtum stuttbuxum og svörtum sokkum með. Það gerist ítrekað á heimaleikjum félagsins og hafa leikmenn nefnt að þetta trufli, jafnvel svo að sendingar hafi ratað í átt að dómurum í stað samherja.
Eftirgrennslan vallarþular á leik gærdagsins færði honum þessa niðurstöðu: Það eru nokkur ár síðan það var tekið út af fjárhagsáætlun KSÍ að dómarar fái sokka í ýmsum litum! Þar höfum við það. Lið sem gleymir sér í litavali þarf að fá lánaða sokka hjá gestgjöfunum, jafnvel treyjur, en dómarar koma bara í sínu eina sokkapari, sem er í sama lit og sokkarnir í aðalbúningi Þórs/KA. Vallarþulurinn hafði samband við búningastjórann sem sagði lítið mál að lána dómurum sokka í öðrum lit ef á þarf að halda, jafnvel í hverjum einasta leik.
Sjá mynd neðst í fréttinni.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir, formaður stjórnar Þórs/KA, afhenti Amalíu Árnadóttur treyju fyrir leikinn í gær sem viðurkenningarvott fyrir 100 leikja áfanga með Þór/KA. Amalía náði þeim áfanga í síðasta leik, sigurleiknum gegn Víkingi, en hún varð jafnframt tvítug sama dag. Mynd: Ármann Hinrik.

Allir leikir 18. umferðarinnar fara fram laugardaginn 29. ágúst og hefjast allir kl. 14, nema leikur Breiðabliks og ÍBV sem hefst kl. 19:15. Fram undan er mikil spenna og barátta um röðun í sæti, hvaða lið lenda fyrir ofan strik með efstu sex og hvaða fjögur lið berjast við að forðast fallið.
Lokaumferð deildarinnar fyrir tvískiptingu fer fram 5.-7. september, en í raun er þetta 10. umferð mótsins sem var færð aftur fyrir 18. umferðina. Athygli vekur að í þessari lokaumferð eru ekki öll liðin að spila á sama tíma, lið sem berjast um sæti í efri hlutanum eru með mismunandi leikdaga í þessari umferð.


Halla Bríet Kristjánsdóttir spilaði í gærkvöld í fyrsta skipti með meistaraflokki Þórs/KA í KSÍ móti og þar með einnig í fyrsta skipti í Bestu deildinni. Myndir: Ármann Hinrik.

Svartir sokkar. Þessi mynd sýnir glögglega það sem bent er á hér að ofan. Hildur Anna Birgisdóttir með boltann, Bergvin Fannar Gunnarsson dómari í humátt á eftir henni í svörtum sokkum. Arnfríður Auður Arnarsdóttir fylgist með. Mynd: Ármann Hinrik.