Karfan er tóm.
Bílaleiga Akureyrar og Grand þvottur ehf. bjóða frítt á síðasta heimaleikinn okkar þetta sumarið. Þór/KA tekur á móti Fram í dag kl. 18. Núna er rétti tíminn til að drífa sig á völlinn, láta vel í sér heyra í stúkunni og styðja stelpurnar okkar til sigurs.
Ýmislegt verður í boði í kringum leikinn, fyrir leik og í leikhléi í tilefni af því að þetta er síðasti heimaleikur liðsins á tímabilinu. Sjá nánar um það í frétt hér á vefnum fyrr í vikunni.
Eins og áður hefur komið fram er keppni í neðri hluta Bestu deildarinnar gríðarlega jöfn og spennandi. Aðeins eru tvær umferðir eftir og munar þremur stigum á liðunum í efsta og neðsta sæti þessa hluta deildarinnar. Hvert einasta stig er því dýrmætt í þessari baráttu fjögurra liða um áframhaldandi sæti í deildinni.


