Erin Flurey, Hulda Ósk Jónsdóttir, Amalía Árnadóttir, Hildur Anna Birgisdóttir og Margrét Árnadóttir fagna marki sem Amalía skoraði eftir sendingu frá Erin. Mynd: Ármann Hinrik.
- - -
Erfiðu og lærdómsríkutímabili lauk þegar Þór/KA vann Víking á útivelli í 21. umferð Bestu deildarinnar, lokaumferð neðri hlutans, og tryggði sér áframhaldandi sæti í Bestu deildinni. Mánuði seinna má segja að ekki aðeins hafi tímabilinu lokið heldur sögu félagsins einnig þegar tilkynnt var um slit á samstarfinu. Lokakafli sögunnar, tímabilið 2026, verður rifjaður upp hér í máli, myndum og fróðleiksmolum.
Nokkrar breytingar urðu á liðinu frá síðasta tímabili. Nýr aðalþjálfari, Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, tók við liðinu af Jóhanni Kristni Gunnarssyni. Í þjálfarateyminu ásamt honum voru Jóhann Hreiðarsson aðstoðarþjálfari, Aron Birkir Stefánsson markvarðaþjálfari, Sigurbjörn Bjarnason styrktarþjálfari og sjúkraþjálfararnir Iðunn Elfa Bolladóttir og Hannes Bjarni Hannesson. Þá kom Sveinn Leó Bogason inn í þjálfarateymið á miðju sumri.
Nýjar inn í meistaraflokkshópinn komu níu leikmenn: Arna Sif Ásgrímsdóttir frá Val, Halla Bríet Kristjánsdóttir frá Völsungi, Elísa Bríet Björnsdóttir frá Tindastóli, Birgitta Rún Finnbogadóttir frá Tindastóli, María Dögg Jóhannesdóttir frá Tindastóli, Erin Flurey frá Bandaríkjunum, Allie Augur frá Bandaríkjunum, Aníta Ingvarsdóttir frá Dalvík og Karen Hulda Hrafnsdóttir frá Dalvík. Þær Aníta og Karen Hulda koma úr yngri flokkum félaganna og hafa spilað með yngri liðum Þórs/KA, en báðar skiptur þær í Dalvík fyrir síðasta tímabil og spiluðu einnig með Dalvíkurliðinu í 2. deild. Í félagaskiptaglugganum um mitt sumar komu inn í hópinn Elizabeth Moore og Lauren Lapomarda frá Bandaríkjunum.
Frá tímabilinu á undan fóru eftirtaldar: Ellie Moreno til Bandaríkjanna, Eva Rut Ásþórsdóttir í Fylki, Henríetta Ágústsdóttir í Stjarnuna (úr láni), Jesssica Berlin til Bandaríkjanna, Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir í Val, Krista Dís Kristinsdóttir í Fram, Sandra María Jessen í 1. FC Köln (fór í ágúst 2025), Sonja Björg Sigurðardóttir í Val og Steingerður Snorradóttir. Að auki skipti Bríet Fjóla Bjarnadóttir í Þrótt í félagaskiptaglugganum í júlí.
Meistaraflokkur Þórs/KA tók þátt í þremur KSÍ mótum á árinu, Lengjubikarnum (deildabikar), Bestu deildinni (Íslandsmót) og Mjólkurbikarnum (bikarkeppni). Liðið tók einnig þátt í og vann Kjarnafæðimótið, en það telst ekki formlegt KSÍ-mót heldur æfingamót og verður ekki farið sérstaklega yfir það hér.
- Samanlagt
Þrjú mót, 27 leikir
10 sigrar – 4 jafntefli – 13 töp
Mörk: 47-44
Markaskorarar
11 – Erin Flurey
7 – Margrét Árnadóttir
5 – Hulda Ósk Jónsdóttir
4 – Amalía Árnadóttir, Bríet Fjóla Bjarnadóttir
3 – María Dögg Jóhannesdóttir
2 – Aníta Ingvarsdóttir, Bríet Jóhannsdóttir
1 – Arna Sif Ásgrímsdóttir, Birgitta Rún Finnbogadóttir, Elísa Bríet Björnsdóttir, Emelía Ósk Krüger, Hildur Anna Birgisdóttir, Hulda Björg Hannesdóttir, Ísey Ragnarsdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir.
- Tvær spiluðu alla leiki liðsins í öllum þremur mótunum, alls 27 leiki
Amalía Árnadóttir og María Dögg Jóhannesdóttir
- Sex leikmenn spiluðu alla leiki liðsins í Bestu deildinni, alls 21 leik
Alessandra Augur, Amalía Árnadóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir, Margrét Árnadóttir og María Dögg Jóhannesdóttir. Allie og Margrét spiluðu allar mínúturnar í öllum leikjum liðsins í deildinni.
- Hreint mark:
8 leikir – Allie Augur (Besta deildin)
2 leikir – Harpa Jóhannsdóttir (Lengjubikar)
- Fleiri fróðleiksmola og tölur má finna í frétt um verðlaun tímabilsins: Arna Sif með þrenn verðlaun - Karen Hulda efnilegust | Þór/KA
- Myndir úr nokkrum af heimaleikjum sumarsins má finna í myndasöfnum hér á vefnum - sjá hér.
Hæsta hlutfall heimaalinna leikmanna
Á vefsíðunni Ordio.is má finna margs konar forvitnilega tölfræði um deildina, liðin og leikmennina. Á myndinni hér að neðan er sýnt hlutfall í mínútum talið sem leikmenn spila fyrir sitt uppeldisfélag. Þór/KA er þar efst á blaði með 58%, örlítið ofar en Breiðablik. Í leikmannahópi Þórs/KA í sumar voru fjórar erlendar (Allie Augur, Erin Flurey, Libby Moore og Lauren Lapomarda), þrjár sem komu frá Tindastóli (María Jóhannesdóttir, Birgitta Rún Finnbogadóttir og Elísa Bríet Björnsdóttir, tvær síðastnefndu koma frá Skagaströnd og spiluðu sín fyrstu ár í yngri flokkum undir merkjum Kormáks/Hvatar ) og tvær sem koma úr Völsungi (Hulda Ósk Jónsdóttir og Halla Bríet Kristjánsdóttir, en Hulda Ósk hefur verið í Þór/KA frá 2016).

Nokkrir fróðleiksmolar af ordia.is
- Þór/KA var með sjötta yngsta meðalaldurinn í deildinni. Meðalaldur í byrjunarliði var 24,1 ár.
- 24 leikmenn spiluðu mínútur fyrir Þór/KA í Bestu deildinni, þar af 15 sem koma upprunalega úr Akureyrarfélögunum.
- Fjórar erlendar spiluðu fyrir félagið í sumar, samtals 20% af spiluðum mínútum liðsins, að meðaltali 2,2 í byrjunarliðinu.
- Erin Flurey var í 8.-10. sæti yfir flest skoruð mörk í deildinni, en spilaði þó aðeins 14 leiki í deildinni.
Þriðja sæti í riðli, þrenna í fyrsta leik
Þór/KA lék í riðli 1 í Lengjubikarnum ásamt Þrótti, Stjörnunni, Grindavík/Njarðvík, FH og FHL. Þegar upp var staðið vantaði liðið eitt stig upp á að komast í undanúrslit mótsins, endaði í 3. sæti riðilsins. Erin Flurey spilaði síðasta leik liðsins í riðlinum og skoraði þrennu strax í fyrri hálfleik í sínum fyrsta leik fyrir félagið.
- Lengjubikarinn
5 leikir – 3. sæti
3 sigrar – 2 töp
Mörk: 18-10
Leikmenn: 22 spiluðu leikina, að auki 1 á skýrslu en kom ekki inn á
Hreint mark: 2 leikir – Harpa Jóhannsdóttir
Markaskorarar:
4 – Bríet Fjóla Bjarnadóttir
3 – Erin Flurey, Hulda Ósk Jónsdóttir
2 – Amalía Árnadóttir
1 – Aníta Ingvarsdóttir, Elísa Bríet Björnsdóttir, Hulda Björg Hannesdóttir, Ísey Ragnarsdóttir, Margrét Árnadóttir, María Dögg Jóhannesdóttir

Erfið byrjun, en útisigrar björguðu í blálokin
Byrjun liðsins í Bestu deildinni varð nokkuð brösug. Eftir að hafa náð jafntefli með marki á lokamínútu í fyrsta leik, tapað niður leik á lokamínútu í öðrum leik og náð stigi með marki á lokamínútu í þriðja leik fylgdu fjórir tapleikir. Inn í taphrinu maímánaðar kom einnig tap í 16 liða úrslit Mjólkurbikarsins. En síðan birti til í júní og sigrarnir fóru að tínast inn einn af öðrum. Eftir markasúpu í tapi gegn Víkingi á heimavelli í lok maí komu þrír leikir í röð þar sem liðið hélt hreinu og náði sér í sjö stig.
En baráttan var áfram hörð og þrátt fyrir að liðið næði í öllu mótinu að halda markinu hreinu í sex leikjum af 18 í deildinni var liðið í 10. sætinu þegar 18 leikja deildinni lauk. Þá tók við spennuþrungin þriggja umferða keppni í neðri hlutanum, sem á endanum tryggði liðinu áframhaldandi sæti í Bestu deildinni. Á lokasprettinum komu tveir útisigrar, af þremur útisigrum liðsins í deildinni í sumar. Þar bættust við tveir leikir þar sem liðið hélt hreinu, alls átta leikir í Bestu deildinni.
Endasprettur mótsins varð æsispennandi þar sem úrslitin réðust í seinni hálfleik í lokaleik okkar á útivelli gegn Víkingi í Reykjavík.
- Besta deildin
21 leikur – 8. sæti
7 sigrar – 4 jafntefli – 10 töp
Mörk: 28-30
Leikmenn: 24 spiluðu leikina, 4 að auki á skýrslu í einum eða fleiri leikjum en komu ekki inn á
Hreint mark: 8 leikir – Allie Augur
Markaskorarar:
8 – Erin Flurey
6 – Margrét Árnadóttir
2 – Amalía Árnadóttir, Bríet Jóhannsdóttir, Hulda Ósk Jónsdóttir, María Dögg Jóhannesdóttir
1 – Aníta Ingvarsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Emelía Ósk Krüger, Hildur Anna Birgisdóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Karen María Sigurgeirsdóttir
Flestir áhorfendur: 1.094 á útileik gegn Víkingi
Flestir áhorfendur á heimaleik: 322 gegn Fram
Áhorfendur á heimaleikjum að meðaltali: 144

Besta deildin - neðri hluti

Leikir liðsins í Bestu deildinni og Mjólkurbikarnum. Ef smellt er á leik opnast leikskýrsla viðkomandi leiks á vef KSÍ.
- Besta deildin – 1. umferð – 25. apríl
Þór/KA – FH 1-1 (0-1)
Erin Flurey (90’).
Áhorfendur: 177
- Besta deildin – 2. umferð – 30. apríl
Grindavík/Njarðvík – Þór/KA 2-1 (0-1)
Erin Flurey (15’). Stoðsending: Margrét Árnadóttir.
Áhorfendur: 120
- Besta deildin – 3. umferð – 6. maí
Þór/KA – Stjarnan 2-2 (0-2)
Amalía Árnadóttir (75’). Stoðsending: Birgitta Rún Finnbogadóttir.
Margrét Árnadóttir (90’). Stoðsending: Elísa Bríet Björnsdóttir.
Áhorfendur: 86
- Besta deildin – 4. umferð – 10. maí
ÍBV – Þór/KA 2-0 (1-0)
Áhorfendur: 108
- Mjólkurbikarkeppnin – 16 liða úrslit – 15. maí
Þór/KA – Stjarnan 1-4 (1-1)
Birgitta Rún Finnbogadóttir (45’). Stoðsending: Aníta Ingvarsdóttir.
Áhorfendur: 130
- Besta deildin – 5. umferð – 20. maí
Þór/KA – Breiðablik 1-3 (0-0)
Hulda Ósk Jónsdóttir (90’). Stoðsending: Aníta Ingvarsdóttir.
Áhorfendur: 110
- Besta deildin – 6. umferð – 25. maí
Fram – Þór/KA 3-2 (2-2)
Margrét Árnadóttir (6’). Stoðsending: María Dögg Jóhannesdóttir
Margrét Árnadóttir (19’). Stoðsending: Arna Sif Ásgrímsdóttir
Áhorfendur: 123
- Besta deildin – 7. umferð – 31. maí
Þór/KA – Víkingur 4-6 (0-4)
Arna Sif Ásgrímsdóttir (60’). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir.
Karen María Sigurgeirsdóttir (72’). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir.
Aníta Ingvarsdóttir (74’). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir.
Emelía Ósk Krüger (88’). Stoðsending: Amalía Árnadóttir.
Áhorfendur: 65
- Besta deildin – 8. umferð – 13. júní
Valur – Þór/KA 0-0
76 áhorfendur
- Besta deildin – 9. umferð – 22. júní
Þór/KA – Þróttur 2-0 (2-0)
María Dögg Jóhannesdóttir (17’).
Amalía Árnadóttir (25’). Stoðsending: Erin Flurey.
171 áhorfandi
- Besta deildin – 11. umferð – 9. júlí
Þór/KA – Grindavík/Njarðvík 1-0 (1-0)
Margrét Árnadóttir (3’). Stoðsending: Hildur Anna Birgisdóttir.
93 áhorfendur
- Besta deildin – 12. umferð – 14. júlí
Stjarnan – Þór/KA 3-2 (1-1)
Bríet Jóhannsdóttir (37’). Stoðsending: María Dögg Jóhannesdóttir.
Erin Flurey (90’)(v).
Áhorfendur: 111
- Besta deildin – 13. umferð – 19. júlí
Þór/KA – ÍBV 2-1 (1-0)
Erin Flurey (7’).
Bríet Jóhannsdóttir (47’). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir.
Áhorfendur: 124
- Besta deildin – 14. umferð – 29. júlí
Breiðablik – Þór/KA 2-0 (1-0)
Áhorfendur: 117
- Besta deildin – 15. umferð – 7. ágúst
Þór/KA – Fram 2-0 (0-0)
Karen Hulda Hrafnsdóttir (53’). Stoðsending: Arna Sif Ásgrímsdóttir.
Erin Flurey (84').
Áhorfendur: 82
- Besta deildin – 16. umferð – 14. ágúst
Víkingur – Þór/KA 0-3 (0-2)
Hildur Anna Birgisdóttir (9’). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir.
Erin Flurey (41’). Stoðsending: Hildur Anna Birgisdóttir.
Hulda Ósk Jónsdóttir (74’). Stoðsending: Arna Sif Ásgrímsdóttir.
Áhorfendur: 198
- Besta deildin – 17. umferð – 21. ágúst
Þór/KA – Valur 0-1 (0-0)
Áhorfendur: 200
- Besta deildin – 18. umferð – 29. ágúst
Þróttur – Þór/KA 0-0
Áhorfendur: 237
- Besta deildin – 10. umferð – 6. september
FH – Þór/KA 2-1 (1-1)
Erin Flurey (23’). Stoðsending: Amalía Árnadóttir.
Áhorfendur: 115
- Besta deildin – 19. umferð - 19. september
Valur – Þór/KA 0-1 (0-0)
Margrét Árnadóttir (65’). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir.
Áhorfendur: 107
- Besta deildin – 20. umferð – 25. september
Þór/KA – Fram 1-2 (1-2)
Margrét Árnadóttir (36’)(v).
Áhorfendur: 322
- Besta deildin – 21. umferð – 2. október
Víkingur – Þór/KA 0-2 (0-0)
María Dögg Jóhannesdóttir (75’). Stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir.
Erin Flurey (84’). Stoðsending: Margrét Árnadóttir.
Áhorfendur: 1.095
- Ef smellt er á nafn leikmanns opnast síða með upplýsingum og tölfræði um viðkomandi leikmann á vef KSÍ.
- Þar sem eru 0 leikir hefur viðkomandi leikmaður verið á leikskýrslu í einum eða fleiri leikjum í því móti, en ekki komið inn á.
Þór/KA - hópurinn 2026

Aftasta röð frá vinstri: Aron Birkir Stefánsson markvarðaþjálfari, Sveinn Leó Bogason aðstoðarþjálfari, Angela Mary Helgadóttir, Birgitta Rún Finnbogadóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Aníta Ingvarsdóttir (Völsungur), Hildur Anna Birgisdóttir, Bríet Jóhannsdóttir, Eva S. Dolina-Sokolowska, Sigurbjörn Bjarnason styrktarþjálfari.
Miðröð frá vinstri: Haraldur Ingólfsson liðsstjóri, Iðunn Elfa Bolladóttir sjúkraþjálfari, Emelía Ósk Krüger, Kolfinna Eik Elínardóttir, Halla Bríet Kristjánsdóttir, Elísa Bríet Björnsdóttir, Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir, Erin Flurey, Amalía Árnadóttir, Aðalsteinn Jóhann Friðriksson þjálfari, Jóhann Hreiðarsson aðstoðarþjálfari.
Fremsta röð frá vinstri: Karen María Sigurgeirsdóttir, María Dögg Jóhannsdóttir, Agnes Birta Stefánsdóttir, Harpa Jóhannsdóttir, Hulda Björg Hannesdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Allie Augur, Hulda Ósk Jónsdóttir, Margrét Árnadóttir, Libby Moore.
Á myndina vantar eftirtaldar: Bríet Kolbrún Hinriksdóttir (á láni hjá Dalvík/Reyni), Ísey Ragnarsdóttir (á láni hjá Völsungi), Bríet Fjóla Bjarnadóttir (fór til Þróttar í sumarglugganum), Lauren Lapomarda (kom til félagsins eftir myndatöku).
Mynd: Skapti Hallgrímsson.
Byrjunarliðin
Við höfum myndað byrjunarliðið í flestum leikjunum okkar í sumar, en þó ekki öllum. Liðsmyndirnar á heimaleikjunum tók Ármann Hinrik.

Víkingur - Þór/KA 2. október 2026.

Þór/KA - Valur 21. ágúst 2026.

Víkingur - Þór/KA 14. ágúst 2026.

Breiðablik - Þór/KA 29. júlí 2026.

Þór/KA - Grindavík/Njarðvík 9. júlí 2026.

Þór/KA - Þróttur 22. júní 2026.

Valur - Þór/KA 13. júní 2026.

Þór/KA - Víkingur 30. maí 2026.

Fram - Þór/KA 25. maí 2026.

Þór/KA - Breiðablik 20. maí 2026.

ÍBV - Þór/KA 10. maí 2026.

Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 30. apríl 2026.

Þór/KA - FH 25. apríl 2026.