Þór/KA2 hefur leik í Kjarnafæðimótinu í dag

Þetta er að byrja aftur!
Þetta er að byrja aftur!

 

Fyrsti leikur í kvennadeild Kjarnafæðimótsins 2023 verður í dag þegar Þór/KA2 mætir liði FHL í Boganum kl. 15.

Við sögðum frá vetrarmótunum í frétt hér á heimasíðunni í vikunni - sjá hér.

Mögulegt verður að fylgjast með leik dagsins á Þór TV gegn 1.000 króna gjaldi. Einnig geta áhugasöm keypt aðgang að sex leikjum okkar liða í Kjarnafæðimótinu fyrir 4.000 krónur. Eini leikur okkar liða sem ekki verður streymt er leikur Þórs/KA og Tindastóls næstkomandi föstudagskvöld.