Karfan er tóm.
Eins og sagt hefur verið frá hér á vefnum og víðar stendur styrktarfélagið Börn með krabbamein að Treyjudeginum föstudaginn 4. september. Liðin í Bestu deildinni lögðu sitt af mörkum í leikjum liðinnar heglar og stelpurnar í U16 hópnum okkar mættu í sínum uppáhaldstreyjum á æfingu í gær.
Hugmyndin með Treyjudeginum er að fá fólk á vinnustöðum, íþróttahópum og annars staðar til að mæta í sinni uppáhaldstreyju í vinnu eða annað á föstudaginn og styðja þannig við og vekja athygli á starfi styrktarfélagsins Börn með krabbamein. Á vefnum treyjudagur.is eru ítarlegri upplýsingar og meðal annars hægt að ganga frá styrkveitingu til félagsins. Upplýsingar um Treyjudaginn og um styrktarfélagið Börn með krabbamein má einnig finna í fyrri frétt okkar, en þar er líka vísað á vef félagsins þar sem hægt er að ganga frá styrkveitingum.
Það voru alls konar treyjur sem sáust á æfingunni hjá U16 hópnum (3. flokki) í gær. Efnt var til samkeppni um flottustu treyjurnar og má sjá verðlaunahafana á myndinni hér að neðan.

Þessar fjórar þóttu vera í flottustu treyjunum á æfingunni í gær. Frá vinstri. Þórdís Sunna Sævarsdóttir, Emilía Ósk Birkisdóttir, Ásta Ninna Reynisdóttir og Daðey Sigga Hilmarsdóttir.