Konurnar og knattspyrnan á Akureyri – sögubrot og fróðleiksmolar
08.11.2026
Meistaraflokkur Þórs/KA 2026. Nöfn þeirra sem á myndinni eru má finna neðst í fréttinni. Mynd: Skapti Hallgrímsson.
- - -
Um 34 ára sögu sameiginlegs kvennaliðs Akureyrarfélaganna í knattspyrnu virðist nú lokið með slitum á samstarfinu um Þór/KA. Saga félagsins verður ekki rakin hér í stuttu máli, en til fróðleiks eru hér teknir saman nokkrir molar í máli og tölum. Brot úr sögunni frá því í maí 1993 þegar fyrst var leikið í Íslandsmóti undir merkjum ÍBA. Konurnar og knattspyrnan á Akureyri eiga sér lengri sögu, fyrir tíma ÍBA liðsins, sem verður mögulega skoðuð síðar á þessum vettvangi eða öðrum.
Áður en fyrst var leikið undir merkjum Þórs/KA í næstefstu deild og bikarkeppni sumarið 1999 höfðu Akureyrarfélögin teflt fram sameiginlegu liði undir merkjum ÍBA í sex tímabil þar á undan, 1993-1998, en sumarið 1999 var fyrst keppt undir merkjum Þórs/KA. Frá 1999 hafa félögin teflt fram sameiginlegu liði undir merkjum Þórs/KA, en á fimm ára tímabili, 2001-2005, bættist KS frá Siglufirði við og hét liðið þá Þór/KA/KS.
Tólf tímabil í röð í topp fjórum!
Samanlagt hafa sameiginleg lið Akureyrarfélaganna spilað 30 tímabil í efstu deild og fjögur tímabil í næstefstu deild. Þór/KA hefur tvisvar orðið Íslandsmeistari, tvisvar meistarar meistaranna, einu sinni deildarmeistarar í 1. deild, tvisvar deildarbikarmeistarar í A-deild, fjórum sinnum unnið B-deild deildabikarsins, einu sinni spilað í úrslitum bikarkeppninnar og þrisvar spilað í Meistaradeild Evrópu, samtals níu Evrópuleiki. ÍBA varð tvisvar deildarmeistari í næstefstu deild.
Á tólf ára tímabili, 2008-2019, að báðum árunum meðtöldum var Þór/KA eina félagið í efstu deild kvenna sem endaði öll árin í einu af efstu fjórum sætum Íslandsmótsins!
Upphafið á Akureyrarvelli, endirinn á Víkingsvelli
Í upptalningum hér að neðan er hægt að fletta upp á leikskýrslum og/eða úrslitum leikja í mótum með því að smella þar sem eru úrslit eða ártöl með bláu letri. Einnig er hægt að fara inn á viðkomandi grein á vefnum timarit.is með því að smella á blaðaúrklippurnar.
Fyrsti leikur sameiginlegs liðs undir merkjum ÍBA í efstu deild var gegn Þrótti Neskaupstað á Akureyrarvelli 22. maí 1993, úrslitin 3-4.Arndís Ólafsdóttir skoraði þrennu fyrir ÍBA. Byrjunarliðið: Þórdís Rósa Sigurðardóttir (m), Steinunn Harpa Jónsdóttir, Valgerður Jóhannsdóttir (f), Ragnheiður Pálsdóttir, Tinna Óttarsdóttir, Vaka Óttarsdóttir, Eydís Ásta Marinósdóttir, Ingibjörg Harpa Ólafsdóttir, Steingerður Sv. Benediktsdóttir, Ellen Óskarsdóttir og Arndís Ólafsdóttir. Varamenn: Borghildur Freysdóttir, Bryndís Sigurðardóttir, Jórunn Eydís Jóhannesdóttir, Hjördís Úlfarsdóttir og Erna Lind Rögnvaldsdóttir. Þjálfari var Sigurbjörn Viðarsson.
DV miðvikudaginn 19. maí 1993, kynning á liðum 1. deildar kvenna.
Fyrstu stig sameiginlegs liðs undir merkjum ÍBA í efstu deild komu gegn Val að Hlíðarenda laugardaginn 29. maí 1993, lokatölur þar0-1ÍBA í vil. Eydís Ásta Marinósdóttir skoraði sigurmarkið. Fyrir stuttu birtistfrétt hér á vefsíðunnieftir að Þór/KA vann Val að Hlíðarenda í neðri hluta Bestu deildarinnar í haust þar sem það var aðeins í annað skipti sem Þór/KA vinnur Val á þeim velli. Það var þó ekki fyrsti sigur sameiginlegs Akureyrarliðs að Hlíðarenda því stelpurnar í ÍBA áttu þann heiður í maí 1993.
Dagur 02.06.1993, bls. 9.
Fyrsti leikur undir merkjum Þórs/KA í efstu deild var á Þórsvellinum þann 23. maí árið 2000 gegn Val. Leikurinn tapaðist 0-3. Fyrsta byrjunarlið Þórs/KA í efstu deild: Elsa Hlín Einarsdóttir (m), Kristín Margrét Gísladóttir, Lára Eymundsdóttir (f), Þóra Pétursdóttir, Guðrún Soffía Viðarsdóttir, Ásta Árnadóttir, Hulda Frímannsdóttir, Sólveig Gærdbo Smáradóttir, Þorbjörg Jóhannsdóttir, Guðrún Ása Jóhannsdóttir og Ágústa Jóna Heiðdal. Varamenn: Steinunn Arna Jóhannesdóttir, Tania Li Mellado, Guðrún Fönn Tómasdóttir, Einarína Einarsdóttir og Hrefna Dagbjartsdóttir.
Fyrstu stig Þórs/KA í efstu deild komu á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í2-2 jafntefli fimmtudaginn 1. júní árið 2000. Jennifer L. Warrick skoraði bæði mörk Þórs/KA í leiknum.
Þór/KA spilaði 453 leiki í efstu deild og skoraði liðið 823 mörk.
Erin Flurey skoraði 800. markið í 1-1 jafntefli gegn FH í 1. umferð Bestu deildarinnar í vor, eins og fram kom í frétt þann 25. apríl.Í fréttinni má einnig finna lista yfir þær knattspyrnukonur sem skoruðu mörk númer 100, 200, 300, 400, 500, 600 og 700 fyrir Þór/KA í efstu deild.
Svo skemmtilega vill til að Erin skoraði einnig síðasta mark Þórs/KA í efstu deild, en það var seinna mark liðsins á 84. mínútu í 2-0 sigri gegn Víkingi á útivelli í lokaumferð neðri hluta deildarinnar þann 2. október í haust.
Upphafsleikur Þórs/KA á Ólafsfjarðarvelli
Fyrsti keppnisleikurinn undir merkjum Þórs/KA fór fram miðvikudaginn 2. júní 1999 og var gegn Leiftri/Dalvík á Ólafsfjarðarvelli. Þór/KA spilaði þá í 1. deild (næstefstu deild), sem var skipt í þrjá riðla. Þór/KA spilaði í Norðurlandsriðli ásamt Leiftri/Dalvík, Tindastóli og Hvöt. Þessum fyrsta leik Þórs/KA 1999 lyktaði með 8-1 sigri Þórs/KA. Fréttaritari þessa pistils hefur ekki upplýsingar markaskorara né leikmenn sem tóku þátt í honum að svo stöddu, en vonandi tekst að bæta úr því fljótlega.
Skjáskot - Dagur Norðurland 1. júní 1999, bls. 4.
Þrjátíu og fjögur ár, þrettán titlar!
ÍBA 1993-1998
ÍBA spilaði fjögur tímabil í efstu deild (hét þá 1. deild) – árin 1993, 95, 96 og 97 – og tvö í næstefstu deild (2. deild) – árin 1994 og 1998. Sjö lið voru í efstu deild 1993, en átta hin árin sem ÍBA spilaði í efstu deild. Fjórtán lið voru í 2. deild 1994 og þrettán árið 1998. Tvisvar fór ÍBA í undanúrslit bikarkeppninnar, 1994 og 1995.
Þór/KA 1999-2026 (Þór/KA/KS 2001-2005)
Þór/KA spilaði 26 tímabil í efstu deild af 28 tímabilum frá því að Þór/KA nafnið var tekið upp 1999 þar til samstarfinu var slitið haustið 2026. 1999 – 2. deild (næstefsta) – 1. sæti - 8 liða úrslit í bikarkeppni
Átta liða Úrvalsdeild
2000 – Úrvalsdeild – 7. sæti – 8 liða úrslit í bikarkeppni
2001– Úrvalsdeild – 8. sæti – ekki með í bikarkeppni – 4. sæti í A-deild deildabikars
2002 – Úrvalsdeild – 5. sæti – undanúrslit í bikarkeppni – 4. sæti í A-deild deildabikars
2003 – Úrvalsdeild – 7. sæti – 8 liða úrslit í bikarkeppni – 6. sæti í A-deild deildabikars
2004 – Úrvalsdeild – 7. æsti – 8 liða úrslit í bikarkeppni – Sigur í B-deild deildabikars
2005– 1. deild – deildarmeistarar – 16 liða úrslit bikarkeppni – 2. sæti í B-deild deildabikars
2006 – Úrvalsdeild – 7. sæti – 16 liða úrslit í bikarkeppni – Sigur í B-deild deildabikars
Níu liða Úrvalsdeild
2007 – Úrvalsdeild – 8. sæti – 8 liða úrslit í bikarkeppni – Sigur í B-deild deildabikars
Tíu liða Úrvalsdeild
2008 – Úrvalsdeild – 4. sæti – 8 liða úrslit í bikarkeppni – Sigur í B-deild deildabikars
2009 – Úrvalsdeild – 3. sæti – 8 liða úrslit í bikarkeppni – Deildabikarmeistarar
2010 – Úrvalsdeild – 2. sæti – undanúrslit í bikarkeppni – undanúrslit í A-deild deildabikars - silfur í Meistarakeppni KSÍ
2011 – Úrvalsdeild – 4. sæti – 16 liða úrslit í bikarkeppni - undanúrslit í A-deild deildabikars
2012 – Úrvalsdeild – Íslandsmeistarar – undanúrslit í bikarkeppni – 6. sæti í A-deild deildabikars
2013 – Úrvalsdeild – 4. sæti – silfurverðlaun í bikarkeppni – undanúrslit í A-deild deildabikars - Meistarar meistaranna
2014 – Úrvalsdeild – 3. sæti – 16 liða úrslit í bikarkeppni – undanúrslit í A-deild deildabikars
2015 – Úrvalsdeild – 4. sæti – 8 liða úrslit bikarkeppni – undanúrslit í A-deild deildabikars
2016 – Úrvalsdeild – 4. sæti – undanúrslit í bikarkeppni – undanúrslit í A-deild deildabikars
2017 – Úrvalsdeild –Íslandsmeistarar – 8 liða úrslit í bikarkeppni - undanúrslit í A-deild deildabikars
2018 – Úrvalsdeild – 2. sæti – 16 liða úrslit í bikarkeppni - Deildabikarmeistarar – Meistarar meistaranna
2019 – Úrvalsdeild – 4. sæti – undanúrslit í bikarkeppni – undanúrslit í deildabikar – silfur í Meistarakeppni KSÍ
2020 – Úrvalsdeild – 5.-7. sæti – undanúrslit í bikarkeppni – Ekkert mót klárað, keppni hætt í Íslandsmóti, bikarkeppni og deildabikar vegna covid
Tvískipting tekin upp, sex lið í efri hluta, fjögur í neðri
2023 – Úrvalsdeild – 6. sæti í 18 leikja deild – 5. sæti í efri hluta – 16 liða úrslit í bikarkeppni - silfur í A-deild deildabikars
2024 – Úrvalsdeild – 3. sæti í 18 leikja deild – 4. sæti í efri hluta – undanúrslit í bikarkeppni - undanúrslit í A-deild deildabikars
2025– Úrvalsdeild – 7. sæti í 18 leikja deild – 7. sæti í neðri hluta – 8 liða úrslit í bikarkeppni - silfur í A-deild deildabikars
2026 – Úrvalsdeild – 10. sæti í 18 leikja deild – 8. sæti í neðri hluta – 16 liða úrslit í bikarkeppni - 3. sæti í riðli 1 í A-deild
Ein úrvalsdeild, sex nöfn
2000 – Landssímadeildin
2001-2002 – Símadeildin
2003-2008 – Landsbankadeildin
2009-2018 – Pepsi deildin
2019-2021 – Pepsi Max deildin
2022-.... – Besta deildin
Þrisvar í Evrópukeppni
Þór/KA hefur þrisvar tekið þátt í Evrópukeppni. Árið 2011 átti Ísland tvo fulltrúa og fór Þór/KA því í Evrópukeppni þar sem liðið varð í 2. sæti árið áður. Í bæði skiptin þegar liðið varð Íslandsmeistari tók félagið þátt í Meistaradeild Evrópu árið eftir, þ.e. 2013 og 2018. Í tvö af þessum þremur skiptum mætti Þór/KA einu af sterkustu liðum Evrópu á þeim tíma, fyrst 1. FFC Turbine Potsdam 71 haustið 2011 og svo Wolfsburg, þar sem Sara Björk Gunnarsdóttir spilaði á þeim tíma, haustið 2018.
Samtals hefur Þór/KA spilað níu Evrópuleiki, unnið tvo, gert eitt jafntefli og tapað sex leikjum. Arna Sif Ásgrímsdóttir skoraði tvö af níu mörkum sem liðið hefur skorað í Evrópuleikjum.
Fremsta röð frá vinstri: Karen María Sigurgeirsdóttir, María Dögg Jóhannsdóttir, Agnes Birta Stefánsdóttir, Harpa Jóhannsdóttir, Hulda Björg Hannesdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Allie Augur, Hulda Ósk Jónsdóttir, Margrét Árnadóttir, Libby Moore.
Á myndina vantar eftirtaldar: Bríet Kolbrún Hinriksdóttir (á láni hjá Dalvík/Reyni), Ísey Ragnarsdóttir (á láni hjá Völsungi), Bríet Fjóla Bjarnadóttir (fór til Þróttar í sumarglugganum), Lauren Lapomarda (kom til félagsins eftir myndatöku).
Mynd: Skapti Hallgrímsson.
Síðasta byrjunarliðið
Byrjunarliðið í lokaleik neðri hluta Bestu deildarinnar á útivelli gegn Víkingi 2. október 2026. Aftari röð frá vinstri: Hulda Ósk Jónsdóttir, María Dögg Jóhannesdóttir, Libby Moore, Halla Bríet Kristjánsdóttir, Arna Sif Ásgrímsdóttir og Karen Hulda Hrafnsdóttir. Fremri röð frá vinstri. Hildur Anna Birgisdóttir, Margrét Árnadóttir, Allie Augur, Erin Flurey og Lauren Lapomarda.