26.06.2026
U19 landsliðið tryggði sér í vor sæti í lokamóti EM sem fram fer í Bosníu-Herzegovínu næstu daga. Í þeim hópi er Elísa Bríet Björnsdóttir frá Þór/KA.
- - -
23.06.2026
Einn sigur, þrjú jafntefli og fimm töp er niðurstaðan í fyrstu níu leikjum liðsins í Bestu deildinni þetta árið. Sem stendur er liðið í 9. sætinu með sex stig, tveimur stigum meira en Fram. Margrét Árnadóttir hefur skorað flest mörk okkar liðs í deildinni, þrjú, og Hulda Ósk Jónsdóttir er efst á stoðsendingalista liðsins með þrjár.
23.06.2026
Arna Sif Ásgrímsdóttir spilaði í gærkvöld 300. meistaraflokksleik sinn fyrir Þór/KA og eru þá taldir saman leikir í Íslandsmóti, bikarkeppni, deildabikar, meistarakeppni KSÍ og Evrópuleikir.
22.06.2026
Þór/KA tekur á móti Þrótti í 9. umferð Bestu deildarinnar í kvöld kl. 18. Hvetjum okkar fólk til að mæta á völlinn og styðja stelpurnar.