Hafdís Nína Elmarsdóttir með U17 í undankeppni EM

Hafdís Nína Elmarsdóttir er með U17 landsliðshópnum í Þýskalandi þar sem liðið tekur þátt í fyrstu umferð undankeppni EM 2027. 

U20: Bikarúrslitaleikur gegn FH í dag

U20 liðið okkar, Þór/KA/Dal/Völ sækir FH heim í Hafnarfjörðinn í dag í bikarúrslitaleik U20. Leikurinn fer fram á Kaplakrikavelli og hefst kl. 14:30.

Arna Sif Ásgrímsdóttir hlaut Kollubikarinn

Kollubikarinn var afhentur í ellefta skipti á lokahófi Þórs/KA í gærkvöld. Gripurinn er veittur í minningu Kolbrúnar Jónsdóttur, fyrrum leikmanns og stjórnarkonu í Þór/KA. Stjórn Þórs/KA ákveður hver hlýtur Kollubikarinn ásamt dæmtrum Kolbrúnar, þeim Ágústu og Örnu Kristinsdætrum.

Arna Sif með þrenn verðlaun - Karen Hulda efnilegust

Arna Sif Ásgrímsdóttir var hlaðin verðlaunum á lokahófi Þórs/KA sem fram fór í gærkvöld, valin besti leikmaðurinn, leikmaður leikmannanna og hlaut Kollubikarinn. Miðvarðaparið sem varð til snemma móts hirti verðlaun kvöldsins því Karen Hulda Hrafnsdóttir var valin efnilegust. Fjallað er um Kollubikarinn í sér frétt - sjá hér.

Besta deildin: Já, Besta deildin 2027

Sigur í síðasta leik tímabilsins á útivelli gegn Víkingi í gærkvöld tryggði Þór/KA áframhaldandi veru í Bestu deildinni. Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði María Dögg Jóhannesdóttir á 75. mínútu og Erin Flurey bætti við örðu marki níu mínútum síðar.

U16: Íslandsmeistaratitill í höfn

A1 lið Þórs/KA/VDK tryggði sér í dag sigur í lotu 3 í A-deild 3. flokks og þar með Íslandsmeistaratitil með 4-0 sigri á Val/KH í loka leik sínum í A-deildinni. 

U16: Þrír leikir í dag og Íslandsmeistaratitill í húfi

Nú líður að lokum tímabilsins hjá U16 liðunum okkar. Öll eiga heimaleik í dag og tvö af þremur liðum klára sína leiki í dag, Íslandsmeistaratitill í húfi hjá öðru þeirra. Þriðja liðið klárar sína leiki um næstu helgi.

Besta deildin: Tap í gær og áfram barist gegn falli

Þrjú lið munu berjast í lokaumferð neðri hluta Bestu deildarinnar um eitt sæti sem í boði er fyrir áframhaldandi veru í Bestu deildinni, Þór/KA, Víkingur og Valur. Fram tryggði sér 7. sætið og sæti í Bestu deildinni áfram með sigri í heimsókn sinni til Akureyrar í gærkvöld. 

Besta deildin: Þór/KA mætir Fram í dag - FRÍTT Á LEIKINN

Bílaleiga Akureyrar og Grand þvottur ehf. bjóða frítt á síðasta heimaleikinn okkar þetta sumarið. Þór/KA tekur á móti Fram í dag kl. 18. Núna er rétti tíminn til að drífa sig á völlinn, láta vel í sér heyra í stúkunni og styðja stelpurnar okkar til sigurs.

Besta deildin: Frítt á leikinn og alls konar fjör á föstudag

Spennan í keppni fjögurra liða í neðri hluta Bestu deildarinnar er gríðarleg og fram undan tveir skemmtilegir föstudagar þegar lokaumferðirnar fara fram. Föstudaginn 25. september er að auki síðasti heimaleikur okkar liðs í sumar. Við viljum gera allt til að gleðja stuðningsfólk okkar og vonumst til að fá sem flest ykkar á leikinn. Bílaleiga Akureyrar og Grand þvottur ehf. bjóða öllum frítt á leikinn.