Arna Sif Ásgrímsdóttir hlaut Kollubikarinn

Kollubikarinn var afhentur í ellefta skipti á lokahófi Þórs/KA í gærkvöld. Gripurinn er veittur í minningu Kolbrúnar Jónsdóttur, fyrrum leikmanns og stjórnarkonu í Þór/KA. Stjórn Þórs/KA ákveður hver hlýtur Kollubikarinn ásamt dæmtrum Kolbrúnar, þeim Ágústu og Örnu Kristinsdætrum.

Arna Sif með þrenn verðlaun - Karen Hulda efnilegust

Arna Sif Ásgrímsdóttir var hlaðin verðlaunum á lokahófi Þórs/KA sem fram fór í gærkvöld, valin besti leikmaðurinn, leikmaður leikmannanna og hlaut Kollubikarinn. Miðvarðaparið sem varð til snemma móts hirti verðlaun kvöldsins því Karen Hulda Hrafnsdóttir var valin efnilegust. Fjallað er um Kollubikarinn í sér frétt - sjá hér.