Besta deildin: Sögulegur sigur að Hlíðarenda

Þór/KA hefur ekki oft sótt gull í greipar Hlíðarenda. Sigurinn á laugardag var því nokkuð sögulegur enda aðeins annar sigur Þórs/KA á Val í efstu deild Íslandsmótsins að Hlíðarenda. Sautján ár á milli og Arna Sif Ásgrímsdóttir spilaði báða leikina.

Besta deildin: Sigur og þrjú stig heim frá Hlíðarenda

Þór/KA vann 1-0 sigur á Val á útivelli í 19. umferð Bestu deildarinnar, sem jafnframt var fyrsta umferð í neðri hluta deildarinnar eftir skiptingu. Margrét Árnadóttir skoraði eina mark leiksins í seinni hálfleiknum.

Besta deildin: Heimsókn að Hlíðarenda í dag

Þór/KA sækir Val heim í 19. umferð Bestu deildarinnar í dag, sem jafnframt er fyrsta umferðin í neðri hluta deildarinnar.

Besta deildin: Þrír leikir fram undan í neðri hlutanum

Bestu deild kvenna hefur nú verið skipt í tvennt. Sex efstu liðin mætast í einfaldri umferð og fjögur neðstu sömuleiðis. Þór/KA á leiki laugardaginn 19. september, föstudaginn 25. september og föstudaginn 2. október. Liðið fær einn heimaleik, 25. september, og verður frítt á þann leik í boði Grand þvottar og Bílaleigu Akureyrar.

Landsliðsverkefni: Okkar stelpur með U17 og U15

Hafdís Nína Elmarsdóttir er stödd með U17 landsliði Íslands í Portugal þar sem liðið tekur þátt í æfingamóti.

Samstarf Þórs/KA og Skógarbaðanna staðfest út árið 2028

Þór/KA og Skógarböðin hafa endurnýjað samstarfssamning sinn til næstu tveggja ára, eða út árið 2028. 

Besta deildin: Naumt tap í Hafnarfirði

Eins marks tap gegn FH varð niðurstaðan síðastliðinn sunnudag í síðasta leik okkar fyrir skiptingu deildarinnar. Sigur var nauðsynlegur til að eiga möguleika á að fara upp í efri hlutann.

Treyjudagurinn: Í hvaða treyju mættir þú í dag?

Styrktarfélagið Börn með krabbamein stendur fyrir átaki þessa dagana sem nær hámarki í dag með Treyjudeginum. Fólk er hvatt til að mæta í sínum uppáhaldstreyjum í vinnu, skóla og annað, taka myndir og setja á samfélagsmiðla merktar #treyjudagurinn. Aðalatriðið er þó að heimsækja vefinn treyjudagur.is og ganga þar frá styrk til félagsins.

U16: Treyjuæfing í tilefni Treyjudagsins

Eins og sagt hefur verið frá hér á vefnum og víðar stendur styrktarfélagið Börn með krabbamein að Treyjudeginum föstudaginn 4. september. Liðin í Bestu deildinni lögðu sitt af mörkum í leikjum liðinnar heglar og stelpurnar í U16 hópnum okkar mættu í sínum uppáhaldstreyjum á æfingu í gær.

Besta deildin: Markalaust jafntefli og baráttan harðnar

Markalaust jafntefli varð niðurstaðan í heimsókn okkar í Laugardalinn í gær, leik gegn Þrótti í 18. umferð Bestu deildarinnar.