Samstarf Þórs/KA og Skógarbaðanna staðfest út árið 2028

Þór/KA og Skógarböðin hafa endurnýjað samstarfssamning sinn til næstu tveggja ára, eða út árið 2028. 

Besta deildin: Naumt tap í Hafnarfirði

Eins marks tap gegn FH varð niðurstaðan síðastliðinn sunnudag í síðasta leik okkar fyrir skiptingu deildarinnar. Sigur var nauðsynlegur til að eiga möguleika á að fara upp í efri hlutann.

Treyjudagurinn: Í hvaða treyju mættir þú í dag?

Styrktarfélagið Börn með krabbamein stendur fyrir átaki þessa dagana sem nær hámarki í dag með Treyjudeginum. Fólk er hvatt til að mæta í sínum uppáhaldstreyjum í vinnu, skóla og annað, taka myndir og setja á samfélagsmiðla merktar #treyjudagurinn. Aðalatriðið er þó að heimsækja vefinn treyjudagur.is og ganga þar frá styrk til félagsins.

U16: Treyjuæfing í tilefni Treyjudagsins

Eins og sagt hefur verið frá hér á vefnum og víðar stendur styrktarfélagið Börn með krabbamein að Treyjudeginum föstudaginn 4. september. Liðin í Bestu deildinni lögðu sitt af mörkum í leikjum liðinnar heglar og stelpurnar í U16 hópnum okkar mættu í sínum uppáhaldstreyjum á æfingu í gær.